Náttúruminjar í Safnahúsinu

Grunnsýning á íslenskri list og sjónrænum menningararfi verður opnuð í Safnahúsinu við Hverfisgötu laugardaginn 18. apríl n.k. Að sýningunni standa sex helstu menningarstofnanir þjóðarinnar á viði safnastarfs; Þjóðminjasafn Íslands, sem er rekstraraðili hússins, Listasafn Íslands, Náttúruminjasafn Íslands, Þjóðskjalasafn Íslands, Landsbókasafn- Háskólabókasafn og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Heiti sýningarinnar er Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim.

Á sýningunni er gestum boðið í leiðangur um sjónrænan menningaarf þjóðarinnar þar sem saman eru komnar margvíslegar gersemar; forngripir, listaverk, skjöl, handrit og náttúrugripir. Þetta er fyrsta sýningin sem Náttúruminjasafn Íslands, höfuðsafn þjóðarinnar á sviði náttúrufræða, tekur þátt í frá stofnun safnsins vorið 2007 og því er um merk tímamót að ræða.

Safnahúsið við Hverfisgötu 15.

Safnahúsið við Hverfisgötu 15.

Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson. Nálgast má upplýsingar um sýninguna á Facebook-síðu hennar hér. Á opnunardegi sýningarinnar verður jafnframt opnuð heimasíða sýningarinnar.

Grunnsýningunni er ætlað að standa í fimm ár en auk þess verður boðið upp á tímabundnar sérsýningar. Annars vegar er um að ræða sérsýningu í einu herbergi Safnahússins til eins árs, þar sem ákveðnu viðfangsefni tiltekins aðstandenda sýningarinnar verður gerð ítarleg skil. Hins vegar er svokölluð kjörgripasýning, hugsuð til hálfs árs eða svo, sem verður staðsett í stigaherbergi á 2. hæð fyrir miðju húsinu. Þar munu aðstandendur sýningarinnar kynna gersemar sem þykja einstaklega sérstakar og eða fágætar.

Náttúruminjasafn Íslands ríður á vaðið með sýningu á kjörgrip og er það geirfuglinn sem þjóðin eignaðist á uppboði í London 1971 eftir almenna fjársöfnun hér heima. Íslenski geirfuglinn er mikið fágæti og dýrmætur gripur en geirfuglinum var útrýmt af Jörðu um miðja 19. öld. Talið er að síðustu tveir fuglarnir hafi verið drepnir í Eldey í fyrstu viku júni árið 1884. Aðeins eru til um 80 geirfuglar og 75 geirfuglsegg í söfnum erlendis og eru flestir munirnir frá Íslandi. Íslenski geirfuglinn og eitt geirfugslegg eru varðveitt á Náttúrufræðistofnun Íslands.

 

 

Sjónarhorn í Safnahúsi

Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim Grunnsýning á íslenskri list og sjónrænum menningararfi var opnuð í Safnahúsinu við Hverfisgötu laugardaginn 18. apríl 2015. Að sýningunni standa sex ríkissöfn landsins; Þjóðminjasafn Íslands, sem er rekstraraðili hússins,...
Leðurblökur

Leðurblökur

Leðurblökur Í Síðdegisútvarpinu í RÚV í seinustu viku var fjallað um áhugaverðan fund leðurblöku sem fannst síðastliðinn mánudag dauð við heimili Ólöfu Ástu Skúladóttur í Hvalfirði. Bendir flest til að leðurblakan hafi verið lifandi skömmu áður en hún fannst.   Fundur...
Náttúruminjasafnið tilnefnt til Íslensku safnaverðlaunanna 2020

Náttúruminjasafnið tilnefnt til Íslensku safnaverðlaunanna 2020

Sýning Náttúruminjasafnsins, Vatnið í náttúru Íslands, hefur hlotið tilnefningu til Íslensku safnaverðlaunanna 2020. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, mun afhenda verðlaunin 18. maí n.k. í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Athöfninni verður streymt á samfélagsmiðlum.

Fimm sýningar og/eða verkefni keppa um verðlaunin að þessu sinni og bárust valnefnd 47 ábendingar um 34 verðug verkefni. Það eru Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS) sem standa saman að Íslensku safnaverðlaununum sem veitt eru annað hvert ár fyrir framúrskarandi starfsemi.

Forvitnileg og fagleg miðlun

Í umsögn segir:

Mat valnefndar er að sýning Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í náttúru Íslands höfði til fjölbreytts hóps gesta á ólíkum aldri þar sem mikilvægri þekkingu á sviði safnsins er miðlað til þeirra á forvitnilegan, faglegan og gagnvirkan hátt. Það er mikilvægt að höfuðsafn á sviði náttúruminja sé sýnilegt almenningi. Grunnsýningin er til fyrirmyndar og íslensku safnastarfi til framdráttar.

Opið á ný í Perlunni

Sýning Náttúruminjasafnsins, Vatnið í náttúru Íslands, var opnuð 1. desember 2018. Sýningar í Perlunni hafa verið lokaðar í samkomubanninu undanfarnar vikur, en nú eru þær aftur opnar alla daga vikunnar frá kl. 12 – 18. Minnt er á tímabundna sýningu safnsins á sama stað um Rostunga, en hún var opnuð rétt áður en samkomubannið skall á.

Aðrir keppendur

Auk Náttúruminjasafnsins hlutu tilnefingu sýningin Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi á Egilsstöðum sem þrjú austfirsk söfn standa að; ný grunnsýning Sjóminjasafnsins, Fiskur og fólk – sjósókn í 150 ár; sýningar Listasafns Reykjavíkur, 2019 – ár listar í almannarými og loks Varðveislu- og rannsóknamiðstöð Þjóðminjasafnsins ásamt Handbók um varðveislu safnkosts.

.