Hvernig metum við hið ómetanlega? Auðlindir og nýting þeirra

Guðbrandsstofnun, í samstarfi við Ferðamálastofu, Landvernd og Orkustofnun, stendur að ráðstefnu dagana 3.-5. desember n.k. undir yfirskriftinni Hvernig metum við hið ómetanlega? Auðlindir og nýting þeirra. Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang til kynningar á fjölbreyttum sjónarmiðum auðlindanýtingar, með áherslu á íslenska staðhætti.

holar

Ráðstefnan stendur saman af inngangserindi og fjórum stuttum málstofum. Yfirlitserindi flytur Sólveig Anna Bóasdóttir og nálgast hún viðfangsefnið út frá nokkrum lykilspurningum: Er náttúran og auðlindirnar ómetanlegar? Hvers vegna, ef svo er? Hvað merkir ómetanlegt? Hvernig metum við, virðum og lifum með hinu ómetanlega? Í málstofunum munu fyrirlesarar nálgast, hver frá sínu sjónarhorni, fjögur ólík en tengd þemu (dagskrá með fyrirlesurum). Í hverri málstofu verður fjallað um viðfangið út frá sjónarhorni ferðamálafræða, auðlindafræða, siðfræði og líffræði.

Ráðstefnan verður haldin á Hólum í Hjaltadal og hefst dagskrá kl. 20:00 að kvöldi 3. desember. Ráðstefnan verður formlega sett að morgni 4. desember og dagskrá fram haldið til hádegis þann 5. desember.

Dagskrá ráðstefnunnar.

Skráning á ráðstefnuna.

Rannsóknir í söfnum – málþing 6. nóvember

Safnaráð stendur fyrir málþingi um rannsóknir safna í Þjóðminjasafninu þann 6. nóvember. Rannsóknir eiga að vera mikilvægur hluti af safnastarfi og ein af forsendum þess að safnastarf sé í takt við tímann. Safnaráð vill kanna og meta vægi rannsókna í starfi safna og finna leiðir til að styrkja þátt rannsókna í safnastarfi. Athyglinni verður beint að hlutverki rannsókna í starfi safna og að þætti safna í að efla skilning á þróun og stöðu menningar, lista, náttúru og vísinda með rannsóknum sínum og miðlun þeirra. Skoðað verður hvað einkennir safnarannsóknir og hverjar væntingar fræðasamfélagsins séu til safna sem rannsóknarstofnana.

Málþingið er haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins og hefst kl. 09:00. Nánar má lesa um dagskrá málþings hér á heimsíðu Safnaráðs.