Jöklar

Geldingadalir gas

Viðburður: Jöklar á hverfanda hveli

Dagsetning: Sunnudagur 6. apríl 2025

Staðsetning: Perlan, 2. hæð

Tími: kl. 14 – 16

Á Spennandi sunnudegi 6. apríl milli kl. 14 og 16 býður Náttúruminjasafnið uppá skemmtilegan jöklaviðburð í samstarfi við Jöklarannsóknarfélag Íslands og Náttúruverndarstofnun á sýningu safnsins, Vatnið í náttúru íslands á 2. hæð Perlunnar. Tilefnið er að  Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út að árið 2025 er tileinkað jöklum.

Sýning á verkum barna og ungmenna í skapandi samkeppni sem haldin var í tilefni alþjóðaárs jökla á hverfanda hveli opnar sama dag og mun standa fram yfir Barnamenningarhátíð, til og með 13. apríl.

Öll velkomin!
Aðgangur er ókeypis.

Náttúruminjasafn Íslands stendur fyrir fjölbreyttum fjölskylduviðburðum fyrsta sunnudag hvers mánaðar, kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að skemmta sér og tengjast náttúrunni á skemmtilegan hátt.