Samstarf vöruhönnunar Listaháskóla Íslands og Náttúruminjasafns Íslands
Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands, tekur á móti nemendum í vöruhönnun hjá Listaháskóla Íslands við upptök Elliðaánna í Heiðmörk.
Náttúruminjasafn Íslands tekur þátt í verkefninu Life Icewater sem miðar að því að auka þekkingu á notkun og ástandi vatns á Íslandi, bæta vatnsgæði og efla fræðslu til almennings og hagaðila um mikilvægi vatns og vatnsverndar. Verkefni safnsins innan Icewater snúa einkum að miðlun og fræðslu og hafa meðal annars leitt af sér samstarf við vöruhönnunardeild Listaháskóli Íslands.
Í byrjun febrúar hófst kennsla í nýju námskeiði á fyrsta ári vöruhönnunar sem ber heitið „Hönnun í samhengi – mikilvægi vatns“. Í námskeiðinu vinna nemendur að rannsóknar- og hönnunarverkefni þar sem þau fylgja Elliðaánum frá upptökum til árósa og kynnast fjölbreyttum hliðum vatns í náttúru og samfélagi. Nemendur fá innsýn frá sérfræðingum sem tengjast umfjöllunarefninu og heimsækja stofnanir og svæði sem tengjast vatni og vatnsvernd, með sérstaka áherslu á Elliðaárnar og nærsamfélag þeirra.
Nýverið fóru nemendur í vettvangs- og rannsóknarferð þar sem ánum var fylgt eftir undir leiðsögn Snæbjörns Guðmundssonar, jarðfræðings hjá Náttúruminjasafninu. Meðal viðkomustaða var vatnstökusvæðið í Gvendarbrunnar þar sem Olgeir Örlygsson hjá Veitum tók á móti hópnum og fjallaði um vatnsöflun og mikilvægi vatnsverndar á svæðinu.
Sjónvarpsþátturinn Landinn fylgdi hópnum eftir í ferðinni og hér má sjá innslagið í heild sinni af vef ruv.is.
Afrakstur námskeiðsins verður kynntur á sýningu sem sett verður upp í Elliðaárstöð í vor. Það verður spennandi að fylgjast með þróun verkefnisins og sjá hvernig nemendur nálgast viðfangsefnið í samhengi náttúru, samfélags og hönnunar.