Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026
Í dag, 12. ágúst, fer tunglið fyrir sólina og hylur hana sjónum. Deildarmyrkvi, þegar tunglið hylur aðeins hluta af sólinni, sést af öllu Íslandi. Almyrkva, þegar tunglið hylur alla sólina, verður aðeins hægt að sjá á vestanverðu landinu. Þá dimmir snögglega, fuglar hætta að syngja og náttúran hljóðnar.
Á landi verður almyrkvinn lengstur hjá Látrabjargi, um 2 mínútur og 13 sekúndur. Í Reykjavík hefst almyrkvinn um kl. 17:48 og stendur í um eina mínútu. Sólmyrkvinn varir alls í rúmar tvær klukkustundir, frá um 16:45 og til um 18:50 en nákvæm tímasetning hans er breytileg eftir staðsetningu á landinu.
Þetta verður fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík síðan 17. júní 1433. Síðasti almyrkvinn sem sást frá Íslandi var 30. júní 1954 en næsti verður ekki fyrr en eftir 170 ár, árið 2196. Þetta er því sannarlega einstök upplifun á ævi okkar.
Það er merkileg tilviljun sem veldur almyrkvum. Sólin og tunglið sýnast jafnstór á himninum því að þótt þvermál sólar sé 400 sinnum stærra en tunglsins er sólin líka 400 sinnum lengra frá jörðinni en tunglið. Það mun þó ekki alltaf vera þannig því að tunglið fjarlægist jörðina um tæpa fjóra sentimetra á ári. Eftir rúmlega 600 milljónir ára mun tunglið ekki geta hulið alla sólina.
Útlit er fyrir að það verði skýjað á stærstum hluta landsins þegar sólmyrkvinn gengur yfir. Engu að síður verður það mögnuð upplifun því almyrkvi er dimmastur þegar alskýjað er. Þá verður skyndilega algjört myrkur eins og um miðja nótt.
Mikilvægt er að nota vottuð sólmyrkvagleraugu þegar horft er á sólina, allan tímann þegar deildarmyrkvinn stendur yfir en taka þau af sér á meðan almyrkvinn er.
Þau sem geta eru hvött til að upplifa sólmyrkvann heima hjá sér. Almannavarnir hvetja ferðalanga til að undirbúa sig vel og vera tímanlega á ferðinni.
Í grein sinni „Sólmyrkvar á Íslandi“ í nýjasta hefti Náttúrufræðingsins fjallar Þórður Arason um sólmyrkva frá landnámi til okkar daga og þær heimildir sem varðveist hafa um þessa merku atburði.