Guðbrandsstofnun, í samstarfi við Ferðamálastofu, Landvernd og Orkustofnun, stendur að ráðstefnu dagana 3.-5. desember n.k. undir yfirskriftinni Hvernig metum við hið ómetanlega? Auðlindir og nýting þeirra. Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang til kynningar á fjölbreyttum sjónarmiðum auðlindanýtingar, með áherslu á íslenska staðhætti.

holar

Ráðstefnan stendur saman af inngangserindi og fjórum stuttum málstofum. Yfirlitserindi flytur Sólveig Anna Bóasdóttir og nálgast hún viðfangsefnið út frá nokkrum lykilspurningum: Er náttúran og auðlindirnar ómetanlegar? Hvers vegna, ef svo er? Hvað merkir ómetanlegt? Hvernig metum við, virðum og lifum með hinu ómetanlega? Í málstofunum munu fyrirlesarar nálgast, hver frá sínu sjónarhorni, fjögur ólík en tengd þemu (dagskrá með fyrirlesurum). Í hverri málstofu verður fjallað um viðfangið út frá sjónarhorni ferðamálafræða, auðlindafræða, siðfræði og líffræði.

Ráðstefnan verður haldin á Hólum í Hjaltadal og hefst dagskrá kl. 20:00 að kvöldi 3. desember. Ráðstefnan verður formlega sett að morgni 4. desember og dagskrá fram haldið til hádegis þann 5. desember.

Dagskrá ráðstefnunnar.

Skráning á ráðstefnuna.