Safnkostur
Náttúruminjasafn Íslands safnar munum sem henta starfsemi þess. Munirnir eru skráðir, rannsakaðir og varðveittir samkvæmt lögum um Náttúruminjasafn Íslands nr. 35/2007 og safnalögum nr. 141/2011.
Safnkostur Náttúruminjasafnsins telur nú um 40.000 muni en þar á meðal eru síð-, og frumsteindir, plöntur og dýr, bækur, teikningar, steingervingar og ýmislegt fleira. Hluti safnkostsins er nú þegar skráður í Sarp en Sarpur er gagnagrunnur sem ætlað er að halda utan um safnmuni höfuðsafna og viðurkenndra safna á Íslandi. Sarpur er aðgengilegur almenningi á sarpur.is.
Náttúruminjasafninu berast reglulega gjafir ýmis konar en höfuðáhersla hefur verið sett á að taka á móti gripum til varðveislu sem hafa gildi fyrir miðlun og henta fyrir fræðslu til skólahópa, fyrir viðburðarhald eða sýningar. Fyrirspurnir varðandi gjafir er hægt að senda til thora.b.andresdottir@nmsi.is en matsnefnd safnsins leggur mat á hvort tekið sé á móti viðkomandi gjöf
Hér má sjá brot úr safnkosti Náttúruminjasafnsins.
Með því að smella á myndina má fá frekari upplýsingar og fróðleik.


