Rauðbrystingur á Barðaströnd

Hvað býr í þjóðgarði?

Sýningin Hvað býr í þjóðgarði? er um þessar mundir opin í sérsýningarrými Náttúruminjasafns Íslands í Perlunni. Sýningin er samstarfsverkefni Náttúruminjasafnsins og Vatnajökulsþjóðgarðs og er innblásin túlkun á þjóðgarðinum í heild sinni, landslagi hans, sögu og samfélaginu umhverfis garðinn.

Miðpunktur sýningarinnar er umfangsmikill og litskrúðugur skúlptúr sem sýnir á áhrifamikinn og hugvitssamlegan hátt náttúrufyrirbrigði og fjölbreytileg stef þjóðgarðsins, en skúlptúrinn er unninn af hönnuðum og listafólki Studio Irmu. Með sýningunni er gestum þannig veitt áþreifanleg innsýn í ævintýraheim Vatnajökuls og náttúruna umhverfis hans.

Sýningin er farandsýning sem mun standa uppi í Perlunni fram á vor 2024 áður en hún leggur land undir fót. Ætlunin er að sýningin ferðist á milli gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs næstu árin, heimafólki, sem og innlendum og erlendum ferðamönnum til fræðslu og yndisauka.

Sýninguna má finna í Dropanum, sérsýningarrými Náttúruminjasafnsins á 2. hæð í Perlunni.

Náttúrusýningar í Perlunni eru opnar alla daga frá kl. 9 til 22.