Rannsóknaverkefni

FishFAR

Náttúruminjasafnið tekur þátt í samstarfsverkefni með Háskólanum á Hólum, Tjóðsavninu í Færeyjum og Háskólanum í Kaupmannahöfn. Verkefnið heitir FishFAR og gengur út á kanna áhrif loftslagsbreytinga á samfélög og vistfræði ferskvatnsfiska í litlum vötnum en sömu vötn voru heimsótt árið 2000 í verkefni sem kallast NORLAKE. Ásamt því að skoða tegundasamsetningu fiska þá verður einnig gerð athugun á umhverfisbreytum, svifdýrasamfélögum og botndýrasamfélögum vatnanna. Með því að bera saman niðurstöður úr þessum tveimur verkefnum má sjá breytingar síðustu 20 ára.

Verkefninu er stýrt af Camille Leblanc, dósent við Háskólann á Hólum og Dr. Agnesi-Katharinu Kreiling við Tjóðsavnið í Færeyjum.

Aðrir þátttakendur í verkefninu eru prófessor Bjarni K. Kristjánsson (Háskólinn á Hólum), Kári Heiðar Árnason (Háskólinn á Hólum), prófessor Kirsten S. Christoffersen (Háskólinn í Kaupmannahöfn), Leivur Janus Hansen (Tjóðsavnið), Dr. Hilmar J. Malmquist (Náttúruminjasafn Íslands) og Dr. Ragnhildur Guðmundsdóttir (Náttúruminjasafn Íslands).

Færeyska sjónvarpið fjallaði um rannsóknina og má sjá fréttina hér: https://kvf.fo/netvarp/sv/2022/08/09/granskingarferd-i-foroyskum-votnum.

Hægt er að fræðast frekar um verkefnið á síðu þess hjá Tjóðsavninu í Færeyjum: https://www.tjodsavnid.fo/landdjoradeild/fishfar og inná síðu Háskólans á Hólum: https://www.holaraquatic.is/fishfar.html

Verkefnið er styrkt af Færeyska rannsóknarsjóðnum, Granskingarráðið https://www.gransking.fo/.

Tengiliður: Ragnhildur Guðmundsdóttir ragnhildur.gudmundsdottir@nmsi.is.

CAP-SHARE

Verkefnið CAP-SHARE: Byggjum brýr á milli vísindafólks, stefnumótenda og samfélaga (á ensku CAP-SHARE: Building Bridges of Shared Capacity between Scientists, Policymakers, and Communities) hefur hlotið styrk frá Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (Interreg Northern Periphery and Arctic) sem nemur rúmum 120 milljónum króna. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem byrjar haustið 2024 og endar haustið 2027. Markmið verkefnisins er að valdefla ungt fólk og styrkja tengsl vísindafólks og stefnumótenda í samfélögum á norðurslóðum þegar kemur að ákvarðanatöku varðandi verndun líffræðilegrar fjölbreytni og aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Áhersla verður lögð á samvinnu við ungmenni og áðurnefndir hópar munu taka þátt í vinnustofum þar sem rödd allra fær að heyrast.

Þátttakendur í verkefninu eru Náttúruminjasafn Íslands, Selasetrið, Húnaklúbburinn og sveitarfélagið Húnaþing vestra ásamt samtökunum Arctic Frontiers í Noregi og Háskóla Lapplands í Finnlandi. Vinnan mun fara fram að hluta til í netheimum en einnig verða vinnustofur og ráðstefnur haldnar í hverju landi fyrir sig þar sem þrjú þemu munu liggja til grundvallar:

  • Byggja brýr á milli samfélaga, stefnumótenda og vísindafólks
  • Hvernig taka skuli tillit til sjónarhorna þvert á kynslóðir heimafólks
  • Fá ungt fólk til að taka þátt í og hafa áhrif á staðbundnar aðgerðir allt frá hugmyndum að stefnumótun

Verkefnið byggir að hluta til á eldra verkefni sem Jessica Aquino, dósent við ferðamáladeild Háskólans á Hólum, leiddi og nefndist Youth for Arctic Nature. Jessica mun einnig vinna við nýja verkefnið ásamt Cécile Chauvat en hún hefur verið ráðin til Náttúruminjasafnsins sem starfsmaður verkefnisins og verður með starfsstöð á Hvammstanga.

Tengiliðir: Ragnhildur Guðmundsdóttir ragnhildur.gudmundsdottir@nmsi.is og Cécile Chauvat cecile.chauvat@nmsi.is

Interreg-síða verkefnisins: https://www.interreg-npa.eu/projects/cap-share/

Opinber síða verkefnisins: https://www.arcticnature.org/cap-share.html

 

 

BIODICE

BIODICE er samstarfsvettvangur stofnana, einstaklinga og fyrirtækja sem hafa það að markmiði að auka skilning og þekkingu á mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni. Markmið BIODICE er að stuðla að rannsóknum og þekkingarmiðlun  sem og innviðauppbyggingu er varða líffræðilega fjölbreytni. Dagleg umsjón BIODICE er hjá Náttúruminjasafni Íslands og hægt er að fræðast meira um samstarfsvettvanginn hér: https://biodice.is/.

Tengiliðir: Skúli Skúlason skuli@holar.is og Rannveig Magnúsdóttir rannveig.magnusdottir@nmsi.is