Ráðherra menningarmála sækir Náttúruminjasafn Íslands heim

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, heimsótti Náttúruminjasafn Íslands þann 19. maí síðastliðinn. Sem höfuðsafn á sviði náttúrufræða heyrir safnið til menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytisins og fer Logi því með yfirumsjón með málaflokknum.

Ráðherra fékk greinagóða kynningu á starfsemi safnsins, til að mynda um safnfræðslu, rannsóknir, viðburði, samstarf, sýningar og safnkost. Einnig fékk ráðherra að sjá úrval muna úr safnkosti Náttúruminjasafnsins, þar á meðal muni sem fjallað verður um í reglulegum pistlum í Morgunblaðinu næstu mánuði. 

Starfsfólk Náttúruminjasafns Íslands tók á móti ráðherra í nýjum höfuðstöðvum safnsins, Náttúruhúsi í Nesi. Frá vinstri: Þóra Björg Andrésdóttir, Viðar Hreinsson, Snæbjörn Guðmundsson, Halla Jónsdóttir, Rannveig Magnúsdóttir, Helga Aradóttir, Anna Katrín Guðmundsdóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Logi Einarsson, Örn Jónasson, Sigrún Brynja Einarsdóttir, Vilhelmína Jónsdóttir og Arna Kristín Einarsdóttir.

Ráðherra skoðaði nýjar framtíðarhöfuðstöðvar Náttúruminjasafnsins, Náttúruhús í Nesi, en framkvæmdir við húsið hafa staðið yfir síðastliðin misseri og sér nú fyrir endann á þeim. Starfsfólkið kynnti nýja og afar metnaðarfulla grunnsýningu safnsins fyrir ráðherra en sýningin mun snúast um hafið í allri sinni dýrð, þar sem meðal annars verður fjallað um hafstrauma Norður-Atlantshafsins, vistkerfi hafsins og mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni.

Starfsfólk Náttúruminjasafns Íslands færir Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, kærar þakkir fyrir að sækja safnið heim.