Blómin og frjóberar

Geldingadalir gas

Viðburður: Blómin og frjóberar

Dagsetning: Sunnudagur 15. nóvember

Staðsetning: Perlan, 2. hæð

Tími: 14-16 

Komdu og kynnstu heillandi fjölbreytileika blóma og frjóbera — og sjáðu lifandi býflugur og býflugnabú!

Á viðburðinum getur þú skoðað fersk blóm, rannsakað frjókorn í smásjá, fylgt ferðalagi frjókornsins og uppgötvað hvernig litir, ilmur, lögun og blómasafi laða að ólíka frjóbera.

Gestir geta spreytt sig á að para saman blóm og frjóbera þeirra og skoðað hvernig fræ verða til. Börn geta líka brugðið sér í hlutverk frjóbera og búið til sitt eigið blóm. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Háskóla Íslands og Judith Trunschke, prófessor í grasafræði.

Öll velkomin! 
Aðgangur er ókeypis.