Styrkur til útgáfu námsefnis
Rannveig Magnúsdóttir, líffræðingur hjá Náttúrminjasafni Íslands, hlaut í lok september mánaðar 900 þúsund króna styrk frá Hagþenki fyrir verkefnið Vatn til framtíðar. Sótt var um styrkinn til að vinna að aðgengilegri handbók um vatn fyrir kennara á öllum skólastigum, kennaranema og almenning.
Bókin mun fjalla um mikilvægi vatns fyrir náttúru og samfélag og þær áskoranir sem tengjast vernd þess og sjálfbærri nýtingu. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga á vatni og auka skilning á tengslum þess við líf, náttúru og samfélög.
Verkefnið tengist þátttöku Náttúruminjasafnsins í ICEWATER, þar sem safnið sinnir miðlun til almennings og skóla.
Ragnhildur Guðmundsdóttir, forstöðumaður Náttúruminjasafnsins tók á móti styrknum fyrir hönd Rannveigar