Geirfuglabækur John Wolleys loksins gefnar út!

Þetta verk var ritað á Suðurnesjum árið 1858. Wolley og félagi hans Alfred Newton voru að leita að geirfuglum, fundu þá hvergi (síðustu fuglarnir höfðu verið felldir við Eldey fjórtán árum áður), en tóku viðtöl við sjómenn sem tóku þátt í síðasta róðrinum. Síðar kom á daginn að þessi Íslandsleiðangur hafði sett aldauða tegunda á dagskrá.

Margur hefur flett verki Wolleys á Bókasafni Cambridge-háskóla, en nú er það öllum aðgengilegt, í ritstjórn Más Jónssonar, prófessors í sagnfræði og Gísla Pálssonar, prófessors emeritus í mannfræði. Már átti frumkvæðið að þessari útgáfu og hann á heiðurinn af vandaðri meðferð handritsins. Útgefandi er Pelagic Publishing í London. Bókin inniheldur, auk handritsins, ítarlegan inngang ritstjóranna, greinar eftir þrjá þekkta fræðimenn, Tim Birkhead, Petru Tjitske Kalshoven og William Montevecchi, formála Errols Fullers og þrjár greinar eftir Wolley og Newton.

Útgáfunni verður fagnað í Bóksölu stúdenta 22. október kl. 15:30.

Náttúruminjasafn Íslands styrkti útgáfuna.

almyrkvi

Már Jónsson og Gísli Pálsson. Kristinn Ingvarsson ljósmyndari.