Fyrsti aðalfundur nýstofnaðs Hollvinafélags Náttúruminjasafns Íslands

Hollvinafélag Náttúruminjasafns Íslands var stofnað nýlega og var fyrsti aðalfundur félagsins haldinn 18. nóvember síðastliðinn. Markmið félagsins er að efla starfsemi, sýnileika og framgang Náttúruminjasafns Íslands. Einnig að styðja við fræðslu og miðlun um íslenska náttúru, stuðla að varðveislu náttúruminja og efla tengsl safnsins við almenning, hagaðila og rannsakendur á sviði safnsins. Fjölmenni var á fundinum en um 50 manns mættu til leiks og ljóst er að mikill áhugi er á að styðja við starf safnsins. Stjórn félagsins skipa nú Áki Jarl Láruson, Ásthildur Erlingsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Sveinn Kári Valdimarsson, Rán Kjartansdóttir og Magdalena Arinbjörnsdóttir  

Hér má hlusta á viðtal við Áka Jarl en hann fór í viðtal á Morgunvaktinni á Rás 1 þar sem hann var að segja frá hinu nýstofnaða félagi: https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunvaktin/23614/ave1eg  

Facebook síða Hollvina Náttúruminjasafns Íslands: https://www.facebook.com/profile.php?id=61595441108599  

Áki Jarl Láruson setti fyrsta aðalfund Hollvinafélagsins

Stjórn Hollvina Náttúruminjasafns Íslands skipa: Magdalena Arinbjörnsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Ásthildur Erlingsdóttir, Áki Jarl Láruson,  Sveinn Kári Valdimarsson og Rán Kjartansdóttir

Fjölmenni sótti fundinn

Sævar Helgi Bragason flutti hugvekju