Vinnustofa um heildstætt mat á líffræðilegri fjölbreytni á Íslandi

Mánudaginn 16. nóvember tók starfsfólk Náttúruminjasafns Íslands þátt í vinnustofu um hvernig leggja megi heildstætt mat á líffræðilega fjölbreytni sem tekur mið af sérstöðu íslenskra vistkerfa. Vinnustofan var haldin á Keldnaholti og var hluti af verkefni sem er styrkt af Orkurannsóknasjóði. Markmið hennar er að þróa samræmdar aðferðir til að meta stöðu lífríkisins og fylgjast með breytingum á því. Þátttakendur í vinnustofunni voru hópur líf- og náttúrufræðinga  og voru líflegar umræður um hvernig nýta megi fyrirliggjandi þekkingu og gögn inn í heildstætt mat og hvar brýnast sé að stoppa í þekkingargöt. Þátttakendur ræddu þessi efni út frá þremur sjónarhornum, með áherslu á haf og strendur, ferskvatn og land. Þrátt fyrir ólík viðfangsefni komu sömu áherslur fram í umræðum hópanna. Breið samstaða var um mikilvægi heildstæðs mats og að brýnt væri að gera fyrirliggjandi gögn aðgengilegri, samræma þau og efla samstarf milli stofnana.

Mikill áhugi var á að halda samstarfinu áfram og þróa verkefnið frekar enda málefnið brýnt.

 

Þátttakendur á vinnustofu um líffræðilega fjölbreytni