Opnun Náttúruhúss í Nesi í sjónmáli

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið birtu frétt á vef Stjórnarráðsins þann 21. nóvember síðastliðinn þar sem reifuð eru næstu skref og samráð varðandi fyrirhugaða sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar (sjá: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026-11-21-natturuminjasafn-islands-og-natturufraedistofnun-naestu-skref/ ). Náttúruminjasafnið fagnar þeim skýru skilaboðum sem koma fram í fréttinni um framtíð safnsins og starfsemi þess í Náttúruhúsi í Nesi. Sérstaklega fagnar safnið þeim afdráttarlausu yfirlýsingum sem þar koma fram um að stefnt sé að opnun hússins og nýrrar grunnsýningar fyrir almenning á næsta ári.

Það er mikilvægt skref fyrir safnið og staðfesting á því markmiði sem unnið hefur verið að árum saman, að íslensk náttúra, rannsóknir og miðlun fái varanlegan og aðgengilegan vettvang fyrir almenning og skólasamfélagið.

Jafnframt telur safnið mikilvægt að benda á að enn hefur ekki verið tryggð fullnægjandi fjármögnun rekstrar starfseminnar. Þótt unnið sé að lausn fjárhagslegra áskorana og fjármögnun sýningarinnar, liggur ekki fyrir hvernig staðið verður undir þeim rekstrarkostnaði sem fylgir opnun og daglegri starfsemi safnsins. Það sem helst munar um er leiguverð hússins sem er um 100 milljónir á ári. Eins og fram kemur í svari ráðherra þá er ekki gert ráð fyrir hækkun til safnsins í gildandi fjármálaáætlun 2027-2031 og á næsta ári er fyrirhugað framlag 161 milljónir. Fjárframlög til safnsins duga því fyrst og fremst fyrir rekstri hússins en tryggja ekki þá mannauðs- og fagstarfsemi sem nauðsynleg er til að húsið geti sinnt hlutverki sínu sem lifandi safn. Náttúruminjasafnið leggur því áherslu á að samhliða ákvörðun um opnun hússins verði tryggður sjálfbær rekstrargrundvöllur fyrir starfsemina í heild, þar á meðal fyrir launakostnað og faglega mönnun. Aðeins þannig verður unnt að standa undir lögbundnu hlutverki safnsins og veita almenningi, skólum og öðrum gestum þá þjónustu, fræðslu og miðlun sem vænst er af þjóðarsafni á sviði náttúrufræða.

Náttúruhús í Nesi, nýjar höfuðstöðvar Náttúruminjasafns Íslands