Vatnið í náttúru Íslands
„Vatn er himneskt. Það er ættað úr himingeimnum og þótt það sé algengasta efnið á yfirborði jarðar er vatnið í eðli sínu heilagt, sjálf kveikja og vagga lífsins. Án vatns er ekkert líf.“
– Guðmundur Páll Ólafsson, 2012
Vatn er undirstaða lífs á jörðinni. Ísland er óvenju vatnsríkt og vatn er mjög einkennandi í náttúru landsins. Sýningin VATNIÐ í náttúru Íslands sem opnuð var í Perlunni 1. desember 2018, fjallar um vatn frá ýmsum hliðum, um efna- og eðlisþætti vatns, gerð og eðli vatnsauðlindarinnar, hlutverk vatns við mótun lands og uppbyggingu, og fjölbreytileika vatnalífríkis, frá jurtum, örverum og dýrum til heilla vistkerfa.
Sýningin veitir á nýstárlegan og heildstæðan hátt innsýn í eina mikilvægustu auðlind landsins, vatnið okkar dýrmæta, leyndardóma þess og mikilvægi fyrir farsæla framtíð og búsetu í landinu.
Sýningin Vatnið í náttúru Íslands er á 2. hæð Perlunnar í Öskjuhlíð. Hún er opin alla daga frá kl. 9 – 21. Gestir greiða engan aðgangseyrir gegn framvísun Vildarvinakorts Perlunnar. Hægt er að nálgast kortið í afgreiðslu Perlunnar á 1. hæð.
Aðgengi
Sýningin Vatnið í náttúru Íslands er staðsett á 2. hæð Perlunnar. Gengið er inn um hringhurð og síðan er gengið upp stiga á 2. hæð en í húsinu er einnig lyfta sem hægt er að nota.
Perlan er staðsett í Öskjuhlíðinni og eftirfarandi strætóleiðir stoppa í nágrenninu:
- Leið 18 stoppar í Varmahlíð og á Bústaðavegi
- Leið 13 stoppar við Mávahlíð
- Leiðir 5 og 8 stoppa á Nauthólsvegi.
- Leiðir 1, 4 og 55 stoppa við Kringlumýrarbraut
Hér er hlekkur á heimasíðu Strætó þar sem hægt er að skipuleggja ferðalagið.
Það eru gjaldfrjáls bílastæði við Perluna, þar á meðal tvö bílastæði fyrir hreyfihamlaða.
Það eru karla- og kvennasalerni á 4. hæð Perlunnar og einnig í kjallara (hæð -1) þar sem má líka finna salerni hannað fyrir hreyfihamlaða.
Það er ekki nestisaðstaða á safninu en á 5. hæð Perlunnar er veitingastaður og kaffihús.
Á sýningunni eru engir þröskuldar og gott rými fyrir hjólastóla. Það eru stólar á 5 stöðum þar sem hægt er að fá sér sæti.
Það er nokkuð áreiti inni í Perlunni, ýmis reglubundin hljóð, t.d. tónlist, dýrahljóð og skipsflauta, og oft margt um manninn. Gosbrunnur fer í gang á 15 mínútna fresti með tilheyrandi látum.
Á sýningunni eru snagar til að hengja af sér og á 4. hæð Perlunnar eru skápar sem hægt er að læsa.
Hér er hlekkur á félagsfærnisögu sem hægt er að nota til að undirbúa heimsókn á sýninguna Vatnið í náttúru Íslands