Þessi hrafntinna er varðveitt sem hluti af safnkosti Náttúruminjasafns Íslands og er hluti af steinasafni hjónanna Kristínar Kjartansdóttur og Guðmundar Bjarnasonar frá Akureyri.
Hrafntinna
Hrafntinna er eldfjallagler sem myndast við náttúrulegt ferli tengt súrri kviku. Flestir þekkja hrafntinnu í sjón og börn sem spila tölvuleikinn Minecraft eru fljót að þekkja hana, gjarnan undir enska heitinu obsidian.
Hrafntinna er jafnan svört að lit og einkennist af fallegu báróttu brotsári sem sést oft vel á brotflötum hennar. Tvö meginferli geta myndað hrafntinnu. Annars vegar er það hröð kólnun súrrar og gassnauðrar kviku, hins vegar mikil seigja þykkfljótandi kvikunnar sem takmarkar kristalmyndun. Við þessar aðstæður myndast glerkennt efni í stað hefðbundins bergs. Af þeim sökum getur hrafntinna verið afar oddhvöss og brotnað þannig að skarpar brúnir myndast. Þrátt fyrir að hrafntinna finnist á nokkrum stöðum á Íslandi telst hún sjaldgæf og finnst einkum á svæðum tengdum eldstöðvum þar sem súr gos hafa átt sér stað. Í Evrópu er hrafntinna almennt fágæt en finnst þó helst í Grikklandi og á Ítalíu.
Hrafntinna hefur verið nýtt til skreytinga á Íslandi. Mulningur úr hrafntinnu, silfurbergi og kvarsi hefur verið notaður í steiningu utan á byggingar, þar á meðal á Þjóðleikhúsinu og Háskóla Íslands. Náttúruminjasafn Íslands varðveitir nokkur sýni af hrafntinnu frá ólíkum stöðum á landinu. Sýnið á myndinni er úr steinasafni hjónanna Kristínar Kjartansdóttur og Guðmundar Bjarnasonar frá Akureyri sem þau gáfu safninu.
Að lokum ber að minna á almenna aðgæsluskyldu sem getið er á um í lögum um náttúruvernd þar sem öllum er skylt að ganga vel um náttúru landsins og sýna ítrustu varúð til að spilla henni ekki. Það er að auki með öllu óheimilt að nema á brott hrafntinnu og aðra náttúrumuni innan friðlýstra svæða, svo sem í friðlandinu að Fjallabaki og Vatnajökulsþjóðgarði. Mikilvægt er því að njóta hrafntinnu í sínu náttúrulega umhverfi og hrófla ekki við henni.
Umfjöllunin var birt í Morgunblaðinu 16. júlí 2026 samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands