Flikruberg

Varðveitt sem hluti af safnkosti Náttúruminjasafns Íslands

Blágrænt berg úr gjóskuflóði

Flikruberg er berg sem myndast í gjóskuflóðum frá sprengigosum. Gjóskuflóð myndast þegar gosstrókur hrynur til jarðar og myndar hraðfara straum heitra gosefna með blöndu af gasi, ösku og vikri. Slík flóð geta ferðast yfir stór svæði og lagt eftir sig þykk lög af gosefnum. Hitinn í flóðunum getur verið svo mikill að efnin þéttast og límast saman áður en þau kólna. Úr verður hart og fast berg sem varðveitir lögun vikurmolanna og annarra gosefna sem upp koma í eldgosinu.

Nafn flikrubergs er dregið af orðinu flikra sem þýðir m.a. mislitur blettur. Þessir blettir eru oft leifar vikurmola sem aflöguðust undir þrýstingi og hita þegar bergið storknaði. Blettirnir, sem sjást víða í berginu, gefa því sérstakt útlit og gera jarðfræðingum kleift að greina hvernig það myndaðist.

Bergið á myndinni er frá Blábjörgum við Berufjörð og er auðþekkt á blágrænum lit og ljósari blettum sem eru samþjappaðir vikurmolar. Einnig má greina smærri brúnleit og dökk bergbrot í fínni grunnmassa bergsins. Blábjörg við Berufjörð eru meðal þekktustu dæma um flikruberg á Íslandi. Bergið myndaðist í öflugu sprengigosi fyrir um tíu milljónum ára. Berglagið má rekja eftir fjöllunum norðaustur með Berufirði og er meðal annars áberandi í Berunestindi.

Sérstakur blágrænn litur Blábjarga hefur lengi vakið athygli og hefur hann verið rakinn til klóríts, grænnar leirsteindar sem getur myndast við ummyndun bergs. Rannsóknir á flikrubergi úr Berufirði hafa þó ekki staðfest að klórít sé til staðar í því magni sem skýri litinn. Gaman væri að fá úr því skorið með frekari rannsóknum.

Blábjörg voru friðlýst árið 2012. Þau varðveita mikilvægar minjar um eldvirkni á Austurlandi og veita innsýn í þá jarðsögu sem mótað hefur íslenskt landslag í milljónir ára.

Umfjöllunin var birt í Morgunblaðinu 6. nóvember 2026 í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands