Auglýst eftir hönnuðum að sýningu um Ferðabók Eggert og Bjarna
Undanfarna mánuði hefur undirbúningur fyrir sýningu í Nesstofu staðið yfir. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Efnistök sýningarinnar munu hverfast um Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar sem byggir á rannsóknarferðum þeirra á árunum 1752-1757.
Nú er auglýst eftir hönnunarteymi til að hanna sýninguna og vinna með sýningarstjóra hennar, Thomas Lyngby.
Hér má sjá auglýsinguna.