Dagur hinna villtu blóma í Borgarholti í Kópavogi

Í tilefni af samnorrænum degi hinna villtu blóma, sem haldinn er þriðja sunnudag í júní, buðu Náttúrufræðistofa Kópavogs, Grasagarður Reykjavíkur, Náttúruminjasafn Íslands og Flóruvinir upp á blómaviðburð í Borgarholtinu í Kópavogi. Á viðburðinum fræddumst við um gróður svæðisins og greindum plöntur sem urðu á vegi okkar.

Gestir voru hvattir til að koma með flórubækur en söfnin buðu einnig uppá greiningarhringi sem hægt var að nota til að skoða liti og lögun blómanna auk hrings þar sem hægt var að finna helstu tegundir í Borgarholtinu. Þátttakendur voru ungir sem aldnir og fjölskyldur nutu náttúrunnar saman í gegnum leik og fræðslu.

Borgarholtið er tilvalið til plöntuskoðunar.

Hjördís og Svavar hjá Grasagarðinum í Reykjavík, Hulda Margrét hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs og Helga, Ragnhildur og Hannes hjá Náttúruminjsafni Íslands tóku á móti gestum.

Sólríkir dagar og hlýindi í vor og byrjun sumars gerði það að verkum að spretta og blómgun plantna er fyrr á ferðinni en venja er. Borgarholt er merkilegt fyrir margar sakir en það er friðlýst náttúruvætti í Kópavogi vegna sjaldgæfra jarðmyndana. Gróðurfar á holtinu einkennist af dæmigerðum holta- eða mólendisgróðri með nokkrum litlum votlendisblettum. Vert er að minnast á að hér er um að ræða villtan gróður inni í miðri byggð, sem hefur orðið fyrir tiltölulega litlum áhrifum af búsetu manna og eru skráðar 124 háplöntutegundir á svæðinu, þar á meðal sjaldgæfar tegundir eins og gullkollur og blátoppa. Gróðurfar í Borgarholti hefur því hátt verndargildi sem villtur gróður í þéttbýli.

Frábær mæting á Dag hinna villtu blóma í ár.