Sýningin Eldur, ís og mjúkur mosi stendur til 6. maí 2024 í sýningarrými Náttúruminjasafns Íslands á 2. hæð Perlunnar
Eldur, ís og mjúkur mosi
Náttúruminjasafn Íslands og Vatnajökulsþjóðgarður tóku þátt í Barnamenningarhátíð og Hönnunarmars í ár með sýningunni Eldur, ís og mjúkur mosi. Sýningin er afrakstur samstarfs stofnananna við sex grunn- og leikskóla í nágrenni þjóðgarðsins auk eins á höfuðborgarsvæðinu, og breiðs hóps hönnuða og listafólks í heimabyggð skólanna.
Sýningin sem stendur yfir 23. apríl – 6. maí í sýningarrými Náttúruminjasafns Íslands á 2. hæð Perlunnar er samsýning nemenda í Egilsstaðaskóla, Grunnskóla Hornafjarðar, Grunn- og leikskólans í Hofgarði, Kirkjubæjarskóla á Síðu, Reykjahlíðarskóla, Urriðaholtsskóla og Öxarfjarðarskóla. Hægt er að skoða verk allra þátttökuskólanna á Fróðleiksbrunninum, fræðslusíðu Náttúruminjasafnsins
Verkefnið hlaut styrk frá Barnamenningarsjóði Íslands og síðastliðinn vetur hafa verið haldnar skapandi og fjölbreyttar smiðjur í grunn- og leikskólum í nágrenni Vatnajökulsþjóðgarðs og á höfuðborgarsvæðinu. Nemendur skólanna þróuðu síðan verkefnin sín í samvinnu við listafólk og kennara í allan vetur. Verkefnið miðaði að því að beisla sköpunarkraft barnanna, sem fengu vettvang til að túlka náttúru garðsins, verndargildi hans og sögu með aðstoð hönnuða og listafólks í fremstu röð. Í gegnum listræn ferli sköpuðust dýrmætar tengingar milli barnanna og Vatnajökulsþjóðgarðs, sem auka á meðvitund framtíðarkynslóðanna um þá sameign þjóðarinnar sem þjóðgarðurinn er.
Listafólkið sem tók þátt í verkefninu með nemendum voru Brynhildur Kristinsdóttir, Eva Bjarnadóttir, Hanna Dís Whitehead, Íris Lind Sævarsdóttir, Jennifer Patricia Please, Sigríður Sunna Reynisdóttir í ÞYKJÓ, Sóley Stefánsdóttir, Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason. Starfsfólk Vatnajökulsþjóðgarðs og Náttúruminjasafnsins voru í virku samtali við skóla og listafólk meðan á verkefninu stóð, ýmist buðu stofnanirnar nemendum í heimsókn á gestastofur og sýningar eða komu í skólana og kynntu þjóðgarðinn.
Á opnun sýningarinnar 23. apríl sögðu nokkrir nemendur Urriðaholtsskóla frá verkum sínum og lagið Eldur, ís og mjúkur mosi sem þau sömdu og fluttu var spilað í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 sama dag.
Gestir hlusta á kynningu á verkinu Tökum höndum saman hjá nemanda í 8. bekk í Urriðaholtsskóla.
Í tilefni sýningarinnar og hátíðanna beggja var blásið til fjölskylduviðburðar laugardaginn 27. apríl í sýningarrými Náttúruminjasafnsins. Hanna Dís Whitehead, hönnuður sem vann í vetur með Grunnskóla Hornafjarðar í verkefninu, stóð fyrir skapandi hönnunarsmiðju þar sem börn og fjölskyldur bjuggu til fugla sem tókust á loft. Leikið var með vikur, ís og vatn og mosi skoðaður í víðsjám. Fjöldi gesta litu við í Perlunni til að taka þátt í viðburðinum og skoða glæsilega listasýningu barnanna sem túlkuðu náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs á framúrskarandi hátt.
Starfsfólk Náttúruminjasafn Íslands og Vatnajökulsþjóðgarðs vill nýta tækifærið og þakka nemendum, listafólki og kennurum kærlega fyrir samstarfið og við hvetjum ykkur öll til að gera ykkur ferð á sýninguna í Perlunni!
Smiðjan var innblásin af verkinu Yfir eftir nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar. Í verkinu skoðum við umhverfi okkar út frá sjónarhorni fugla.
Hanna Dís Whitehead sem vann að verkefninu Eldur, ís og mjúkur mosi með Grunnskóla Hornafjarðar leiddi smiðjuna.
Viðburðurinn var hluti af Barnamenningarhátíð og Hönnunarmars.