Sýningin Fjaran laðaði að sér fjölda gesta
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 1. júní. Af því tilefni bauð Náttúruminjasafn Íslands í samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun, til lifandi og fræðandi sýningar í tengslum við Icewater-verkefnið, sem miðar að því að auka vitund í samfélaginu um mikilvægi þeirrar auðlindar sem vatnið er.
Sýningin sem bar heitið Fjaran, beindi sjónum að lífríki fjörunnar, umgengni okkar mannanna og nauðsyn mengunarlausra haf- og vatnasvæða. Gestir fræddust um beltaskiptingu fjörunnar og áhrif eiturefna á sjávarlíf, meðal annars í gegnum lifandi dæmi með nákuðunga og kræklinga og hvernig rusl á ströndum landsins hefur þróast undanfarin ár.
Smiðjur
Sérstök áhersla var lögð á þátttöku barna og fjölskyldna með fjölbreyttum smiðjum þar sem krakkar gátu blandað liti með ljósi, búið til ígulker úr ull og skoðað safnkost Náttúruminjasafns Íslands, m.a með því að skoða í víðsjám.
Móðurlíf Gaiu
Sýningin var í samstarfi við listakonuna Katrínu Þorvaldsdóttur. Verk hennar, móðurlíf Gaiu var til sýnis, en það varpar ljósi á stærsta lífkerfi jarðar á aðgengilegan og áhrifaríkan hátt.

Sýningin var í Verbúð 57 á Grandagarði.