Fjöruferð við Gróttu vakti mikla lukku

Fróðleiksfúsir gestir í fjörunni

Sunnudaginn 19. apríl stóðu Náttúruminjasafn Íslands, Hafrannsóknarstofnun og Náttúruverndarstofnun fyrir skemmtilegri og fræðandi fjöruferð í fjörunni við Gróttu. Viðburðurinn var afar vel sóttur og mættu á þriðja hundrað manns til að kynna sér lífríkið í fjörunni og njóta leiðsagnar starfsfólks og vísindafólks stofnananna.

Gestir sýndu mikinn áhuga og nutu þess að fræðast um fjölbreytt líríki fjörunnar, þar á meðal um þang og þara, krabba, snigla og kuðunga og vakti sprettfiskurinn sérstaka athygli hjá yngstu gestunum.

Viðburðurinn er hluti af viðburðaröð LIFE Icewater verkefnisins þar sem markmiðið er að auka fræðslu og áhuga almennings á vatni og strandsjó með það að leiðarljósi að efla vernd vatnsauðlinda og hámarka samfélagslegan ávinning til framtíðar.