Hilmar J. Malmquist tekinn aftur við sem forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands
Hilmar J. Malmquist hefur tekið aftur við stöðu forstöðumanns Náttúruminjasafns Íslands en hann var í rannsóknarleyfi frá 21. maí til 30. september.
Ragnhildur Guðmundsdóttir, sérfræðingur við safnið, var skipuð forstöðumaður þess af ráðherra í fjarveru Hilmars.
Dr. Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands.