Vel heppnuð Vísindavaka

Náttúruminjasafn Íslands og Hafrannsóknastofnun tóku sameiginlega þátt í Vísindavöku nú um helgina undir merkjum Icewater með slagorðinu Vinnum saman að verndun vatns.

Vísindavakan í ár var einstaklega vel sótt og voru gestir ríflega 7.000.  Það var því mikið líf og fjör, og glaðir gestir á öllum aldri sem fengu innsýn inn í lífríkið í ferkvatni og sjó.  

Áhugasamir fengu að skoða og læra um ýmis fjörudýr og þörunga og skoða muninn á lífverum í sjó og ferskvatni.  Boðið var upp á föndursmiðju þar sem gestir gátu sest niður og notið þess að föndra í rólegheitum glitrandi fjörudýr og síðast en ekki síst gátu gestir fengið tattú af lífverum úr fjörunni.

Stofnanirnar eru einstaklega ánægðar með samstarfið sem sýnir að við erum sterkari saman.

almyrkvi

Starfsfólk Hafró og Náttúruminjasafnsins