Helsingjanef

Varðveitt sem hluti af safnkosti Náttúruminjasafns Íslands

Gjöf frá Jörundi Svavarssyni, prófessors emeritus við Háskóla Íslands

Dularfull tengsl fugls og krabbadýrs

Helsingjanef tilheyra sérkennilegum krabbadýrum af ættbálki skelskúfa (Cirripedia). Helsingjanef eru skyld hrúðurkörlum og báðir hópar teygja út fíngerða ummyndaða fætur sína til að ná í fæðu úr sjónum. Helsingjanef eru að öðru leiti mjög ólík hrúðurkörlum í útliti en þau hafa langan, mjúkan stilk sem festir þau við undirlagið. Á þessum stilk situr dýrið sjálft, umlukið skeljum sem mynda einskonar „höfuð“. Helsingjanef minna því óneitanlega á litla gæsahálsa og gogga. Helsingjanef lifa ekki við strendur Íslands en þau berast hingað með hafstraumum á m.a. rekaviði. Nokkrar tegundir hafa fundist hér í gegnum tíðina og þessi sýningargripur er af tegundinni Lepas anatifera.

Helsingjar (Branta leucopsis) eru gæsir sem koma til Íslands sem fargestir á vorin og haustin. Þeir verpa aðallega á Grænlandi og nú í auknum mæli á Íslandi, en hafa vetursetu á Bretlandseyjum. Fyrr á öldum vissu Evrópubúar lítið um varpstöðvar helsingja. Fuglarnir birtust skyndilega á haustin og hurfu svo aftur á vorin, en engin hreiður eða ungar fundust. Því spratt upp sú hugmynd að helsingjar yrðu ekki til eins og aðrir fuglar, heldur kæmu úr sjónum – nánar tiltekið úr helsingjanefjum. Þessi hugmynd lifði einnig á Íslandi og náttúrufræðingurinn Jón lærði skrifaði á 17. öld  að helsingjar vaxi útúr trjám á sjó. Helsingjanef rak stundum á fjörur og um svipað leyti birtust helsingjarnir skyndilega. Fyrir fólk sem hafði ekki séð varp þeirra á fjarlægum slóðum var því ekki óeðlilegt að tengja saman þessi undarlegu krabbadýr og fuglana sem virtust birtast upp úr þurru.

Nú vitum við að helsingjanef, krabbadýrið sérstaka, breytist aldrei í fugl en þessar tvær lífverur hafa bundist sterkum böndum í þessari skemmtilegu þjóðtrú. Sagan lifir m.a. áfram í enska heitinu á helsingjum sem er barnacle goose og helsingjanefi sem er goose barnacle.

Umfjöllunin var birt í Morgunblaðinu 2. október 2026 í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands