Varðveittur sem hluti af safnkosti Náttúruminjasafns Íslands

Gjöf frá Valsárskóla á Svalbarðsströnd

Hrafninn – þjóðtrú og vísindi

Hrafninn (Corvus corax), eða krummi eins og hann er oft kallaður, er stór og kolsvartur fugl sem flestir Íslendingar þekkja. Hann er útbreiddur á norðurhveli jarðar og er stærsti spörfugl Íslands. Hrafninn er algengur staðfugl hér á landi en stofninn hefur minnkað það mikið undanfarna áratugi að tegundin er á válista.

Hrafninn hefur löngum haft á sér dularfullan blæ. Hrafnarnir Huginn og Muninn voru fuglar Óðins í norrænni goðafræði og táknuðu meðal annars hug og minni. Í Landnámabók segir frá því að hrafnar hafi vísað Flóka Vilgerðarsyni leiðina til Íslands. Slíkar sögur segja okkur að fólk hafi löngum tengt hrafna við skarpa greind, athyglisgáfu og jafnvel yfirnáttúrulega þekkingu. En hrafninn hefur einnig vakið undrun, ótta, aðdáun og fyrirlitningu.

Rannsóknir staðfesta vitsmuni og félagshæfni hrafna. Þeir geta fylgst með hegðun annarra, lært af henni og hermt eftir. Þeir gera upp á milli annarra út frá atferli þeirra og átta sig jafnvel á ójöfnuði. Hrafnar eru líka flinkir að leysa vandamál, geta notað hluti sem verkfæri, lært af reynslunni og dregið ályktanir út frá aðstæðum sem þeir hafa ekki áður kynnst.

Löngum var talið að hrafnar hefðu eigið tungumál og það er kannski ekki skrýtið því krunkið er fjölbreytt. Hljóðin hafa mismunandi merkingu og eru einstaklingsbundin, sýna vald, yfirburði og veita upplýsingar t.d. um fæðu. Það er því ekki út í bláinn þegar krumminn krunkar úti og kallar á nafna sinn.

Hrafninn hefur flogið um mörg svið tilverunnar: úr íslenskri þjóðtrú og norrænni goðafræði yfir í rannsóknarstofur vísindafólks. Með því að vernda hrafninn varðveitum við ekki aðeins merkilegan fugl heldur líka mikilvægan hluta af íslenskri náttúru og menningararfi.

Umfjöllunin var birt í Morgunblaðinu 18. september 2026 í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands