Grænn og rauður jaspis
Varðveittur sem hluti af safnkosti Náttúruminjasafns Íslands
Náttúrulegt listaverk
Jaspis er steind sem vekur oft athygli fyrir fjölbreytta liti og mynstur. Í sumum steinum má greina form sem minna á fjöll, dali eða önnur landslög og hafa slíkir steinar löngum notið vinsælda sem skrautsteinar. Jaspis er oftast rauður, gulur, brúnn eða móleitur en finna má fleiri litatóna eins og græna, bláa, svarta og fjólubláa liti, þó sjaldgæfari séu. Oft er hann ekki einlitur heldur skreyttur rákum, blettum og óreglulegum litabeltum sem gerir hvern stein einstakan.
Jaspis er síðsteind úr kísil og tilheyrir kvarsfjölskyldunni. Hann er dulkorna og sjást engir kristallar með berum augum. Litirnir stafa af örlitlu magni annarra efna sem blönduðust kísilnum þegar steindin myndaðist. Rauðir og gulir litir tengjast gjarnan járnsamböndum en önnur snefilefni geta gefið græna, bláa, fjólubláa eða svarta litatóna.
Jaspis er ein af þeim síðsteindum sem myndast þegar jarðhitavatn streymir um sprungur, holrúm og glufur í bergi. Vatnið ber með sér uppleystan kísil sem getur sest til þegar það kólnar eða efnasamsetning þess breytist. Smám saman fyllast sprungur og holrými af kísil sem harðnar og myndar jaspis. Þannig finnst jaspis oft sem holufyllingar eða æðar í eldra bergi.
Mynstrin í jaspis endurspegla oft myndunarsögu steinsins. Litaðar rendur geta myndast þegar kísill fellur út í nokkrum áföngum, en blettir og óregluleg mynstur þegar mismunandi efni berast með vatninu á mismunandi tímum. Hver steinn varðveitir þannig vísbendingar um þær aðstæður sem ríktu þegar hann myndaðist. Þótt jaspis myndi sjaldan stóra og reglulega kristalla býr hann yfir fjölbreytileika í litum og mynstrum sem gera hvern stein að eins konar náttúrulegu listaverki.
Sjá má að í jaspisnum á myndinni eru bæði mismunandi litir og rákir og má þar gera ráð fyrir að efnasamsetning jarðhitavatnsins hafi tekið miklum breytingum á meðan hann var að myndast.
Umfjöllunin var birt í Morgunblaðinu 23. október 2026 í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands