Ljósmynd, hnífur, skeið og pressuð laufblöð af linditré úr fórum Sigfúsar Sigurhjartarsonar.

Varðveitt sem hluti af safnkosti Náttúruminjasafns Íslands

Laufblöðin í fangelsinu

Í safnkosti Náttúruminjasafns Íslands má finna plöntusafn Sigfúsar Sigurhjartarsonar stjórnmálamanns sem hann safnaði og útbjó á meðan hann var fangi í Bretlandi. Sigfús var í ritstjórn Þjóðviljans ásamt Einari Olgeirssyni og Sigurði Guðmundssyni. Í apríl 1941 voru þeir ólöglega handteknir af bresku herstjórninni og fluttir úr landi fyrir áróður gegn Bretum og að hvetja til uppreisnar meðal hermannanna með skrifum sínum í blaðið.

Við komuna til Bretlands voru þeir fyrst hafðir í haldi í London Reception Center, þar sem fólk var yfirheyrt við komuna til Bretlands. Síðar voru þeir fluttir í Brixton fangelsið. Þar fengu þeir að ganga úti á steyptum stéttum í fangelsisgarðinum, sama hringinn í tvo tíma á dag. Eftir þrjá mánuði í fangavist á Bretlandi voru þeir látnir lausir að kröfu íslenskra stjórnvalda.

Samkvæmt Einari og Sigurði hafði fangelsisvistin mikil áhrif á Sigfús. Hann stóð tímunum saman á stól í klefanum og horfði út um rimlagluggann. Hann leitaði til náttúrunnar eins og Einar segir: „Sigfús varð allt í einu hálærður grasafræðingur. Hann ættfærði hvert strá og blóm meðan enn var hægt að fá að vera úti og athuga grösin, milli þess sem askan breiddist yfir þau úr brununum í borginni.“ Úr sjónvarpsþáttum RÚV, Fangar Breta, frá 2024.

Á myndinni má sjá laufblöð af linditré (Tilia), sem eru útbreidd um tempraða belti norðurhvelsins. Linditré hafa falleg hjartalaga laufblöð eins og þetta eintak sýnir glöggt. Sigfús safnaði einnig laufum af kastaníu, sýrenum, álmi, eik og ösp í fangavistinni. Þessar tegundir voru ekki algengar á Íslandi á þessum tíma og hafa því eflaust vakið athygli Sigfúsar. Á myndinni má einnig líta hnífapör sem Sigfús hirti úr fangelsinu sem og ljósmynd af honum sjálfum. Þetta dæmi sýnir okkur að náttúran er alls staðar og veitir gleði og styrk, jafnvel í erfiðustu aðstæðum.

Umfjöllunin var birt í Morgunblaðinu 30. október 2026 í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands