Askja
Askja í Dyngjufjöllum í Ódáðahrauni er merkt með rauðum punkti á kortið (kortagrunnur frá Landmælingum Íslands).
Eldstöðvakerfi Öskju er talið hafa verið virkt í a.m.k. 200.000 ár. Yfir 200 basísk hraungos hafa orðið í Öskju á síðustu 7.000 árum og 40 þeirra á síðastliðnum 1.100 árum. Einnig eru þekkt þrjú basísk tætigos. Af súrum gosum eru a.m.k. fjögur þekkt gos á síðastliðnum 11.000 árum.
Síðustu eldgos í Öskju
Ár | Gerð eldgoss |
---|---|
1961 | Basískt flæðigos |
1921–1929 | Basísk flæðigos, eldar með a.m.k. 5–6 eldgosum |
1875 | Basískt og súrt sprengigos |
Stórt sprengigos varð í Öskju dagana 28.–29. mars 1875. Gosið átti sér nokkurn aðdraganda; vart varð við jarðskjálftahrinur frá eldstöðinni árið 1874 og einnig gufusprengingar og lítið eldgos í byrjun árs 1875. Sprengigosið er þriðja öflugasta gos sinnar tegundar sem orðið hefur á Íslandi á sögulegum tíma og þá myndaðist Öskjuvatn. Gosefnin úr sprengigosinu voru bæði basísk og súr, en það bendir til kvikublöndunar sem einnig hefur aukið kraftinn í gosinu. Mikill gosmökkur fylgdi gosinu og lagðist ljós aska og vikur yfir Austurland, frá Héraði til Berufjarðar. Á Jökuldal mældist vikurlagið allt að 20 cm þykkt. Askan frá eldgosinu barst víða og hefur fundist í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Þetta mikla öskufall olli búsifjum á Austurlandi og hafði áhrif á það hversu margir fluttu þaðan til Vesturheims.
Ítarefni
Carey, R.J., Houghton, B. & Thordarsson, T. 2010. Tephra dispersal and eruption dynamics of wet and dry phases of the 1875 eruption of Askja volcano, Iceland. Bulletin of volcanology 72. 259–278.
Jón Kristinn Helgason, Sigríður Sif Gylfadóttir, Sveinn Brynjólfsson, Harpa Grímsdóttir, Ármann Höskuldsson, Þorsteinn Sæmundsson, Ásta Rut Hjartardóttir, Freysteinn Sigmundsson & Tómas Jóhannesson 2019. Berghlaupið í Öskju 21. júlí 2014. Náttúrufræðingurinn 89. 5–21.
Kristján Sæmundsson & Freysteinn Sigmundsson 2013. Norðurgosbelti. Bls. 343–353 í: Náttúruvá á Íslandi: Eldgos og jarðskjálftar (ritstj. Júlíus Sólnes, Freysteinn Sigmundsson & Bjarni Bessason). Háskólaútgáfan, Reykjavík.
Thordarson, T. & Larsen, G. 2007. Volcanism in Iceland in historical time: Volcano types, eruption styles and eruptive history. Journal of Geodynamics 43. 118–152.
Þorvaldur Þórðarson & Hartley, M. 2019. Askja. Í: Bergrún A. Óladóttir, Guðrún Larsen & Magnús T. Guðmundsson. Íslensk eldfjallavefsjá. VÍ, HÍ og Avd-RLS. Sótt 3.4.2020 af http://www.islenskeldfjoll.is/?volcano=ASK#.