Haustlægðir og flækingsfuglar
Haustlægðir sem ganga yfir landið bera stundum með sér flækingsfugla, ýmist frá N-Ameríku eða Evrópu og Síberíu, allt eftir því hvernig vindar blása. Þetta eru nær eingöngu fuglar sem hrakist hafa af farleið sinni milli sumar- og vetrarstöðva.
Með lægðinni sem gekk yfir landið nú um helgina bárust fléttuskríkja (fyrri myndin) og græningi (seinni myndin), en heimkynni þessara spörfugla eru í N-Ameríku.
Þessi árstími er gósentíð fuglaskoðara. Þeir fylgjast grannt með veðurspám og rjúka til í leit að flækingsfuglum um leið og lægð er gengin yfir landið. Myndataka er snar þáttur í þessu áhugamáli. Helstu svæðin sem leitað er á eru Suðurnes, undir Eyjafjöllum, Vestmannaeyjar, Suðursveit, Hornafjörður og allt norður í Stöðvarfjörð.
![Fléttuskríkja_ÞS](https://nmsi.is/wp-content/uploads/2020/10/Flettuskrikja_THS.jpg)
Fléttuskríkja. Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson.
![Græningi_ÞS](https://nmsi.is/wp-content/uploads/2020/10/Graeningi_THS.jpg)
Græningi. Ljósm. Þorfinnur Sigurgeirsson.