Steingervingur
Varðveittur sem hluti af safnkosti Náttúruminjasafns Íslands

Gjöf frá Friðgeiri Grímssyni, steingervingafræðingi

Forn skordýr á Íslandi

 

Steingervingurinn á myndinni er mýfluga af hármýsætt (Bibionidae) sem líklega er útdauð. Hún er með vængi sína útbreidda og er ótrúlega vel varðveitt. Hármýstegundir eru litlar til meðalstórar mýflugur sem eru svartar, brúnar eða ryðlitaðar. Í dag finnast þrjár tegundir hármýs á Íslandi, galdralöpp, þerrilöpp og sóttarlöpp, en þær eru allar algengar.

Steingerða mýflugan á myndinni fannst við rannsóknir Friðgeirs Grímssonar steingervingafræðings á Skarðsstrandar – Mókollsdals setlagasyrpunni, sem má rekja frá Skarðsströnd og norðaustur að Kollafirði á Ströndum og er um 8-9 milljón ára gömul.

Setlögin í Mókollsdal eru lagskipt og yfir 120 metra þykk, en talið er að þar hafi verið stór megineldstöð með öskju. Efsta setlagið hefur safnast upp í öskjuvatninu og þar hafa meðal annars varðveist plöntuleifar og kísilþörungar. Undir vatnasetinu er þykk gjóskulagasyrpa þar sem fín og gróf gjóskulög skiptast á. Í fínu gjóskunni hafa fundist steingerðar leifar skordýra. Talið er að dauða þeirra megi rekja til eldsumbrotanna með beinum hætti, annaðhvort vegna gasmengunar eða er þau grófust í gjóskunni. Þar steingerðust þau og hafa varðveist fram á okkar dag.

Steingervingar verða til þegar lífrænt efni grefst við súrefnissnauðar aðstæður, til dæmis í vatni, gjósku eða seti. Fæstar lífverur verða að steingervingum því mjög sérstakar aðstæður þarf til að mynda þá. Flestir steingervingar dýra á Íslandi eiga uppruna sinn úr sjó en leifar landdýra eru sjaldgæfar í íslenskum setlögum. Vegna skorts á kalki í jörðu varðveitast t.d. bein hér almennt illa. Af landskordýrum hafa hér fundist hármý, blaðlýs og ein bjöllutegund, ásamt ummerkjum eftir skordýr á steingerðum plöntuleifum.

Munum að steingervingar eru alfriðaðir samkvæmt íslenskum náttúruverndarlögum. Þeir eru hluti af náttúruarfi þjóðarinnar og óheimilt er að safna þeim nema með sérstöku leyfi. Ef við rekumst á steingervinga er mikilvægt að njóta þeirra þar sem þeir eru, taka mynd en skilja þá síðan eftir í sínu náttúrulega umhverfi.

Umfjöllunin var birt í Morgunblaðinu 25. september 2026 í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands