Vatnið í náttúru Íslands_gamalt

„Vatn er himneskt. Það er ættað úr himingeimnum og þótt það sé algengasta efnið á yfirborði jarðar er vatnið í eðli sínu heilagt, sjálf kveikja og vagga lífsins. Án vatns er ekkert líf.“

—GPÓ 2012

Vatn er undirstaða lífs á jörðinni. Ísland er óvenju vatnsríkt og vatn er mjög einkennandi í náttúru landsins. Sýningin VATNIÐ í náttúru Íslands sem opnuð var í Perlunni 1. desember 2018, fjallar um vatn frá ýmsum hliðum, um efna- og eðlisþætti vatns, gerð og eðli vatnsauðlindarinnar, hlutverk vatns við mótun lands og uppbyggingu, og fjölbreytileika vatnalífríkis, frá jurtum, örverum og dýrum til heilla vistkerfa.

Sýningin veitir á nýstárlegan og heildstæðan hátt innsýn í eina mikilvægustu auðlind landsins, vatnið okkar dýrmæta, leyndardóma þess og mikilvægi fyrir farsæla framtíð og búsetu í landinu.

Sýningin er á 2. hæð Perlunnar. Meðan á Covid-19 faraldrinum stendur og samkomubann yfir 50 manns er í gildi, verður sýningin opin frá kl. 12 – 18 alla daga.

Ókeypis er inn á sýninguna gegn framvísun Vildarvinakorts Perlunnar. Hægt er að nálgast kortið í afgreiðslu Perlunnar á 1. hæð og hér er hægt að sækja um kortið.