Vísindavaka 2026
Viðburður: Vísindavaka 2026
Dagsetning: Laugardagur 26. September
Staðsetning: Laugardalshöllin
Tími: 12 – 17
Vinnum saman að verndun vatns!
Náttúruminjasafn Íslands og Hafrannsóknastofnun taka höndum saman og fjalla um mikilvægi vatns og sjávar.
Hægt verður að föndra glitrandi fjörudýr, fá lífveru húðflúr og fræðast um lífríki í sjó og vötnum.
Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.
Viðburðurinn er liður í viðburðadagskrá LIFE Icewater, sem er samstarfsverkefni vísindafólks, sveitarfélaga, fyrirtækja og stjórnvalda, um að bæta vatnsgæði í ferskvatni og sjó um land allt.