Vikur úr Öræfajökli
Varðveittur sem hluti af safnkosti Náttúruminjasafns Íslands
Safnað af jarðfræðingum hjá Náttúruminjasafni Íslands við Fagurhólsmýri árið 2022
Vikur flýtur á vatni
Vikur er ein tegund gjósku, sem er samheiti yfir allt loftborið efni sem kemur upp í eldgosum. Vikur myndast þegar gasrík kvika þeytist upp í loftið og snöggkólnar. Vikur er léttur og frauðkenndur og flýtur á vatni vegna holrýmis sem myndast þegar gas þenst út áður en kvikan nær fullri storknun. Þegar vikur mettast af vatni þá sekkur hann. Stærð vikurs er breytileg og þyngstu molarnir setjast næst upptökum eldgossins.
Flest kannast við vikur úr Heklu sem sjá má víða í nágrenni eldfjallsins. Hekluvikur er notaður sem íblöndunarefni við mold til að létta hana og auka frárennsli. Vikur myndast einnig í fleiri eldstöðvum. Vikurinn á myndinni er úr eldgosinu árið 1362 í Öræfajökli, en hann var grafinn upp í árseti við bæinn Fagurhólsmýri í Öræfasveit.
Öræfajökull er ein stærsta eldstöð landsins en þó ekki sú virkasta. Á sögulegum tíma hefur einungis gosið tvisvar sinnum í Öræfajökli, á árunum 1362 og 1727. Eldgosið árið 1362 var stórt kísilríkt sprengigos þar sem upp kom um 10 km3 af gjósku. Talið er að gosmökkurinn hafi náð 35 km hæð í upphafi eldgossins. Gjóskan barst með vindum um stóran hluta landsins og hefur meðal annars fundist á Grænlandi, Noregi og Írlandi. Eftir gosið lagðist byggð við rætur Öræfajökuls, sem nefndist Litla-Hérað, í eyði í fjölmörg ár. Svæðið öðlaðist þá nýtt nafn: Öræfi. Fjallað er um þetta eldgos í Oddverjaannál frá 17. öld en þar segir: „Eldsuppkoma í Litla-Héraði og eyddi allt héraðið. Höfðu þar áður verið 70 bæir. Lifði engin kvik kind eftir utan ein öldruð kona og kapall.“
Eldgos eru stórbrotinn hluti af náttúru Íslands. Þau móta land og breyta landslagi en geta einnig breytt lífi fólks á örskömmum tíma. Það er mikilvægt að umgangast náttúruna og jarðminjar af virðingu.
Umfjöllunin var birt í Morgunblaðinu 13. október 2026 í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands