Náttúruminjasafn Íslands tók þátt í Safnanótt í samstarfi við Vísindasmiðju Háskóla Íslands undir merkjum Icewater-verkefnisins. Mikið var um að vera í Perlunni þar sem fjölmargir gestir heimsóttu sýninguna Vatnið í náttúru Íslands. Þar gátu gestir á öllum aldri kynnst undrum vatnsins og fræðst um margbreytilega eiginleika þess í gegnum skemmtilegar tilraunir og leik, þar sem vísindin lifnuðu við á aðgengilegan og lifandi hátt.

Við þökkum öllum sem komu í heimsókn kærlega fyrir og sendum Vísindasmiðju Háskóla Íslands sérstakar þakkir fyrir frábært samstarf.