Nú stendur yfir kjördæmavika á Alþingi og af því tilefni fengum við góða heimsókn frá þingmönnum Suðvesturkjördæmis ásamt bæjarstjórn Seltjarnarness í framtíðarhúsnæði Náttúruminjasafnsins, Náttúruhús í Nesi.
Heimsóknin var nýtt í gott spjall um framtíð safnsins, sameiningaráform við Náttúrufræðistofnun og önnur framtíðaráform. Jafnframt voru glæsileg húsakynni safnsins skoðuð en húsið er einmitt hannað og teiknað af Yrki arkitektum.
Það var einstaklega ánægjulegt að finna áhugann á safninu og framtíð þess og einlægan stuðning við að opna safnið og nýja sýningu fyrir almenningi sem fyrst. Grunnsýning safnsins um hafið, líffræðilega fjölbreytni og loftslagsmál er fullhönnuð og því er mikill spenningur fyrir að geta hafið næsta fasa og farið í uppsetningarferli. Það styttist því vonandi í að Náttúruminjasafnið geti opnað dyrnar fyrir landsmenn, gesti landsins og síðast en ekki síst skólahópa en allt er þetta liður í að auka fræðslu um mikilvægi náttúrunnar.
Við þökkum kærlega fyrir komuna.