Geirfuglabækur John Wollys loksins gefnar út!

Geirfuglabækur John Wollys loksins gefnar út!

Geirfuglabækur John Wolleys loksins gefnar út!

Þetta verk var ritað á Suðurnesjum árið 1858. Wolley og félagi hans Alfred Newton voru að leita að geirfuglum, fundu þá hvergi (síðustu fuglarnir höfðu verið felldir við Eldey fjórtán árum áður), en tóku viðtöl við sjómenn sem tóku þátt í síðasta róðrinum. Síðar kom á daginn að þessi Íslandsleiðangur hafði sett aldauða tegunda á dagskrá.

Margur hefur flett verki Wolleys á Bókasafni Cambridge-háskóla, en nú er það öllum aðgengilegt, í ritstjórn Más Jónssonar, prófessors í sagnfræði og Gísla Pálssonar, prófessors emeritus í mannfræði. Már átti frumkvæðið að þessari útgáfu og hann á heiðurinn af vandaðri meðferð handritsins. Útgefandi er Pelagic Publishing í London. Bókin inniheldur, auk handritsins, ítarlegan inngang ritstjóranna, greinar eftir þrjá þekkta fræðimenn, Tim Birkhead, Petru Tjitske Kalshoven og William Montevecchi, formála Errols Fullers og þrjár greinar eftir Wolley og Newton.

Útgáfunni verður fagnað í Bóksölu stúdenta 22. október kl. 15:30.

Náttúruminjasafn Íslands styrkti útgáfuna.

almyrkvi

Már Jónsson og Gísli Pálsson. Kristinn Ingvarsson ljósmyndari.

Styrkur til útgáfu námsefnis

Styrkur til útgáfu námsefnis

Styrkur til útgáfu námsefnis

Rannveig Magnúsdóttir, líffræðingur hjá Náttúrminjasafni Íslands, hlaut í lok september mánaðar 900 þúsund króna styrk frá Hagþenki fyrir verkefnið Vatn til framtíðar. Sótt var um styrkinn til að vinna að aðgengilegri handbók um vatn fyrir kennara á öllum skólastigum, kennaranema og almenning.

Bókin mun fjalla um mikilvægi vatns fyrir náttúru og samfélag og þær áskoranir sem tengjast vernd þess og sjálfbærri nýtingu. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga á vatni og auka skilning á tengslum þess við líf, náttúru og samfélög.

Verkefnið tengist þátttöku Náttúruminjasafnsins í ICEWATER, þar sem safnið sinnir miðlun til almennings og skóla.

almyrkvi

Ragnhildur Guðmundsdóttir, forstöðumaður Náttúruminjasafnsins tók á móti styrknum fyrir hönd Rannveigar

Heimsókn þingmanna Suðvesturkjördæmis

Heimsókn þingmanna Suðvesturkjördæmis

Nú stendur yfir kjördæmavika á Alþingi og af því tilefni fengum við góða heimsókn frá þingmönnum Suðvesturkjördæmis ásamt bæjarstjórn Seltjarnarness í framtíðarhúsnæði Náttúruminjasafnsins, Náttúruhús í Nesi. 

Heimsóknin var nýtt í gott spjall um framtíð safnsins, sameiningaráform við Náttúrufræðistofnun og önnur framtíðaráform.  Jafnframt voru glæsileg húsakynni safnsins skoðuð en húsið er einmitt hannað og teiknað af Yrki arkitektum.

Það var einstaklega ánægjulegt að finna áhugann á safninu og framtíð þess og einlægan stuðning við að opna safnið og nýja sýningu fyrir almenningi sem fyrst.  Grunnsýning safnsins um hafið, líffræðilega fjölbreytni og loftslagsmál er fullhönnuð og því er mikill spenningur fyrir að geta hafið næsta fasa og farið í uppsetningarferli. Það styttist því vonandi í að Náttúruminjasafnið geti opnað dyrnar fyrir landsmenn, gesti landsins og síðast en ekki síst skólahópa en allt er þetta liður í að auka fræðslu um mikilvægi náttúrunnar.

Við þökkum kærlega fyrir komuna.

 

 

Blómin og frjóberar

Blómin og frjóberar

Blómin og frjóberar

Geldingadalir gas

Viðburður: Blómin og frjóberar

Dagsetning: Sunnudagur 15. nóvember

Staðsetning: Perlan, 2. hæð

Tími: 14-16 

Blóm eru fjölbreytt að lit, ilmi og lögun, en hvernig tengjast þessir eiginleikar dýrunum sem heimsækja þau? Á þessum skemmtilega viðburði kynnumst við samspili blóma og frjóbera og fylgjum ferðalagi frjókornsins frá einu blómi til annars.

Teymi líffræðinga við Háskóla Íslands, undir forystu Judith Trunschke, leiðir gesti inn í fjölbreyttan heim blóma og frjóbera. Við skoðum hvað leynist inni í blómum, kíkjum á frjókorn í smásjá og spreytum okkur á að para saman blóm og frjóbera þeirra. Lifandi humlur og humlubú verða á staðnum og börn geta brugðið sér í hlutverk frjóbera og búið til sín eigin blóm til að taka með heim. 

Öll velkomin!
Aðgangur er ókeypis.