Safnanótt verður haldin föstudaginn 7. febrúar frá kl. 18 – 23 og er hluti af Vetrarhátíð. Náttúruminjasafnið tekur að sjálfsögðu þátt í viðburðinum og munu vísindamenn og safnkennarar taka á móti gestum á sýningu okkar Vatnið í náttúru Íslands í Perlunni. Sýningin fjallar um vatn í öllum sínum myndum, um fjölbreytileik vatnsauðlindarinnar, lífríkið sem í vatninu býr, vistþjónustu vatns og hlutverk þess við mótun lands og myndun. Miðlun efnis er sérstaklega sniðin að yngri kynslóðinni. Safnkennarar og vísindamenn taka á móti gestum og miðla fræðslu og spjalla um þessa dásamlegu auðlind. Hægt verður að sulla í vatnsborði, skoða vatnabjöllur, uppgötva hvernig vatnsþrýstingur virkar og margt fleira.
Nýjustu fréttir
Fréttasafn
Náttúruminjasafn Íslands
- Aðalskrifstofa: Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík
- Sími: 577 1800 ∣ Netfang: nmsi@nmsi.is
- Símanúmer ritstjóra Náttúrufræðingsins: 577 1802
- Afgreiðslu- og símatími er virka daga frá kl. 9:00 til 16:00
- Persónuverndarstefna